Vín - Kynningartónleikar í Musikverein
Fimmtudaginn 27. apríl kl. 19.30 fara fram kynningartónleikar í "Metallener Saal" í Musikverein. Kynntur verður diskurinnm "EXILES" sem söngkonan Judith Kopecky og píanóleikarinn Julia Tinhof tóku upp með sönglögum eftir nokkur tónskáld, sem þurftu að yfirgefa land sitt fyrir síðustu heimstyrjöld, þ.á.m. Victor Urbancic, sem lagði mikið til uppbyggingar tónlistarlífs á Íslandi.


