Norræn kvikmyndahátíð í Urania í Vín 23.-29. mars 2006
Norræn kvikmyndahátíð í Urania í Vín 23.-29. mars 2006
Líkt og undanfarin ár verður haldin norræn kvikmyndahátíð í Urania í Vín í mars n.k. undir yfirskriftinni "Heimat, Identität, Migration." Vinir norrænna kvikmynda geta notið góðs úrvals kvikmynda frá Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, en um 15 kvikmyndir verða sýndar á hátíðinni. Allar kvikmyndirnar verða sýndar á frummálinu með enskum eða þýskum texta og er miðaverð 5 evrur. Íslensku kvikmyndirnarnar eru eftirfarandi:
Nói Albinói
(2003, Dagur Kári, frummynd með þýskum texta). Föstudagur, 24. mars kl. 21
Börn náttúrunnar
(1991, Fridrik Þór Fridiksson, frummynd með enskum texta). Sunnudagur, 26. mars kl. 17
Ungfrúin góða og húsið
(1999, Gudný Halldórsdóttir, frummynd með enskum texta). Þriðjudagur, 28. mars kl. 21

