Listsýning í Vín
Listsýning verður opnuð föstudaginn 26. ágúst 2005 að Brick-5, Fünfhausgasse 5, 1150 Vín sem íslenskir listamenn taka þátt í. Sýningin, þar sem nokkrum listformum verður gerð skil, verður opin daglega frá 27. ágúst til og með 4. september næstkomandi, kl. 14:00 til 19:00. Hljómsveitin Úlpa og Yudith spila við opnunina. Nánari upplýsingar má nálgast á eftirfarandi vefslóð:
www.augnablik.at

