Myndlistarsýning í Salzburg
Hinn 27.júlí f.m. var opnuđ í Salzburg í Austurríki samsýning á verkum íslensku myndlistarmannanna Helga Ţorgils Friđjónssonar og Eggerts Péturssonar. Um er ađ rćđa samvinnuverkefni borgaryfirvalada í Salzburg og sendiráđs Íslands í Vínarborg og hefur Reykjavíkurborg styrkt sýninguna. Sýningin er haldin í Galerie der Stadt Salzburg ( Vogelhaus) í Mirebellgarđinum í Salzburg og stendur hún til 24.ágúst n.k..
Sýningin er haldin á sama tíma og og hin ţekkta árlega Listahátíđ í Salzburg og er vel stađsett rétt hjá Mirabell höllinni. Ţegar hafa margir skođađ hana og hefur sýningin vakiđ talsverđa athygli. Hafa nú ţegar nokkur málverk veriđ seld. Ţess má geta ađ í nýjasta tölublađi hins virta listtímarits Weltkunst, sem gefiđ er út í Munchen og er ađ miklu leyti helgađ Salzborgar hátíđinni, er sérstaklega fjallađ um sýninguna og birtar myndir af málverkum íslensku listamannanna.


