Sendiráð Íslands - Vín, Austurríki

Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771



Fréttir og tilkynningar


Myndlistarsýning í Salzburg

30.6.2005

Sendiráðið vekur athygli á samsýningu íslensku myndlistarmannanna Helga Þorgils Friðjónssonar og Eggerts Péturssonar í Galerie der Stadt Salzburg (Vogelhaus) í Mirabell-garðinum í Salzburg. Um er að ræða samvinnuverkefni borgaryfirvalda í Salzburg og sendiráðs Íslands í Vínarborg. Myndlistarsýningin hefst þann 27. júlí kl. 19:00 með opnunarmóttöku að viðstöddum borgarstjóra Salzburg og sendiherra Íslands í Austurríki og eru allir Íslendingar velkomnir. Sýningin stendur til 24. ágúst og er opin frá kl. 14:00 -18:00 alla virka daga.



 

 


Fax:

+43 1 533 2774


Opnunartími:

Mán-fös
9:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, þýska, enska.