Sendiráð Íslands - Vín, Austurríki

Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771



Fréttir og tilkynningar


Trúnaðarbréfsafhendingar

3.3.2005

Afhending trúnaðarbréfs sendiherra í Bosníu

3.3.2005

Sveinn Björnsson, sendiherra, afhenti þann 1. mars s.l., Borislav Paravac, forseta ráðherraráðs Bosníu og Hersegóvínu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Bosníu og Hersegóvínu með aðsetur í Vínarborg.

Sendiherra átti fund með dr. Mladen Ivanic, utanríkisráðherra Bosníu, auk þess að eiga viðræður við aðra háttsetta embættismenn og yfirmann Verslunarráðs Bosníu og Hersegóvínu. Á fundunum kom almennt fram áhugi á að efla frekar tengsl landanna ekki síst á sviði viðskipta. Sendiherra heimsótti einnig sendinefnd ÖSE í Bosníu og Hersegóvínu og ræddi við yfirmann hennar en íslensk stjórnvöld hafa sérstaklega stutt baráttu stofnunarinnar gegn mansali í Bosníu og Hersegóvínu.

Árið 2003 nam verðmæti vöruinnflutnings frá Bosníu og Hersegóvínu til Íslands 4 milljónum króna, en verðmæti vöruútflutnings frá Íslandi til Bosníu og Hersegóvínu nam 300 þúsundum króna.


Afhending trúnaðarbréfs í Tékklandi

22.11.2004

Sveinn Björnsson, sendiherra, afhenti þann 18. nóvember sl. dr. Vaclav Klaus, forseta Tékklands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Tékklandi með aðsetur í Vínarborg.

Eftir athöfnina átti sendiherra fund með forsetanum, sem varautanríkisráðherra Tékklands sat að auki. Á fundinum voru rædd tvíhliða samskipti Íslands og Tékklands, framboð Íslands til Öryggisráðsins 2009 og 2010 auk málefna sem tengjast Evrópusambandinu. Ennfremur átti sendiherra viðræður við háttsetta embættismenn utanríkisráðuneytisins í Prag um samskipti landanna.

Sveinn Björnsson er þriðji sendiherra Íslands gagnvart Tékklandi og jafnframt sá fyrsti með aðsetur í Vín, en það auðveldar fyrirsvarið gagnvart Tékklandi vegna nálægðar Vínar við Prag.

Með inngöngu Tékklands í Evrópusambandið þann 1. maí sl. opnast leiðir til nánari samskipta Íslands við Tékkland. Árið 2003 nam verðmæti vöruinnflutnings frá Tékklandi til Íslands 1382 milljónum króna, en verðmæti vöruútflutnings frá Íslandi til Tékklands nam 30 milljónum króna.

Afhending trúnaðarbréfs í Tékklandi


Afhending trúnaðarbréfs í Slóvakíu

28.10.2004

Sveinn Björnsson sendiherra afhenti 28. október, Dr. Ivan Gasparovic, forseta Slóvakíu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Slóvakíu með aðsetur í Vín.

Ennfremur átti hann viðræður við háttsetta embættismenn í utanríkisráðuneytinu í Bratislava um tvíhliða samskipti Íslands og Slóvakíu, þ.á m. samstarf um nýtingu jarðhita og málefni tengdum Evrópusambandinu.

Afhending trúnaðarbréfs í Slóvakíu


Afhending trúnaðarbréfs í Austurríki

9.9.2004

Sveinn Björnsson, sendiherra, afhenti 9. september, forseta Austurríkis, dr. Heinz Fischer, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Austurríki.

Í samtali eftir afhendingu trúnaðarbréfsins lýsti forsetinn yfir ánægju sinni með tvíhliða samskipti Austurríkis og Íslands, ekki síst vegna margþættra og sögulegra tengsla ríkjanna á sviði menningarmála. Viðskipti Íslands og Austurríkis hafa verið stöðug undanfarin ár. Árið 2003 nam verðmæti vöruinnflutnings frá Austurríki til Íslands 1350 milljónum króna, en verðmæti vöruútflutnings frá Íslandi til Austurríkis nam 268 milljónum króna.

Afhending trúnaðarbréfs í Austurríki


Afhending trúnaðarbréfs í Ungverjalandi

30.8.2004

Sveinn Björnsson, sendiherra, afhenti 30. ágúst 2004, Ferenc Madl, forseta Ungverjalands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands gagnvart Ungverjalandi með aðsetur í Austurríki.

Jafnframt átti hann viðræður við embættismenn utanríkisráðuneytisins í Búdapest um tvíhliða samskipti landanna, framboð Íslands til Öryggiráðsins og málefni Íslands og Evrópusambandsins.

Afhending trúnaðarbréfs í Ungverjalandi


Afhending trúnaðarbréfs hjá IAEA

20.8.2004

Sveinn Björnsson, sendiherra, afhenti í dag Mohamed EIBaradei, framkvæmdastjóra Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) í Vínarborg, trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands hjá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni.

IAEA - Afhending trúnaðarbréfs

Starfsemi Alþjóðakjarnorkumálastofnuninnar miðar að því að auka öryggi og eftirlit með nýtingu kjarnorku og geislavirkra efna í friðsamlegum tilgangi í aðildarríkjunum sem eru 137 talsins.

Á vettvangi stofnunarinnar fer fram margvíslegt tæknilegt og vísindalegt samstarf í þágu aukins öryggis á þessu sviði. Stofnunin sinnir þróun lagalega bindandi alþjóðasamninga um öryggi vegna friðsamlegrar nýtingu kjarnorku og geislavirkra efna auk þess að vinna að fjölþættum aðgerðum gegn smygli og þjófnaði á geislavirkum efnum og úrgangi.


Afhending trúnaðarbréfs hjá Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE)

19.8.2004

Sveinn Björnsson, sendiherra, afhenti 19. ágúst, Jan Kubis, framkvæmdastjóra Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Vínarborg, trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu.

ÖSE - Afhending trúnaðarbréfs

ÖSE gegnir mikilvægu hlutverki við eflingu öryggis, mannréttinda, lýðræðis og átakavarna í aðildarríkjunum sem eru fimmtíu og fimm talsins. Innan stofnunarinnar fer fram reglubundið samráð á sviði mannréttindamála, lýðræðis, réttinda minnihlutahópa, auk öryggis- og afvopnunarmála. Einnig má nefna víðtækt kosningaeftirlit á vegum stofnunarinnar í aðildarríkjunum. Öll ríki Evrópu eiga aðild að ÖSE auk Bandaríkjanna, Kanada, Kasakstan, Kirgisía, Tadsjikistan, Túrkmenistan og Úsbekistan.

Með framlagi stofnunarinnar á ofangreindum sviðum, ekki síst með starfi átján sendinefnda ÖSE á vettvangi í aðildarríkjunum, gegnir ÖSE þýðingarmiklu hlutverki við að tryggja stöðugleika og festa lýðræði í sessi.


Afhending trúnaðarbréfs hjá UNOV

11.8.2004

Sveinn Björnsson, sendiherra, hefur afhent Antonio Maria Costa, framkvæmdastjóra skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg (UNOV), trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands hjá skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg.

UNOV - Afhending trúnaðarbréfs

Starfsemi Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg lýtur sérstaklega að afbrota- og fíkniefnavörnum en á síðustu árum hefur barátta Sameinuðu þjóðanna gegn afbrotum og skipulagðri glæpastarfsemi orðið æ mikilvægari. Sérstök skrifstofa Sameinuðu þjóðanna að fíkniefna- og glæpavörnum (UNODC) er staðsett í Vínarborg.

Á vettvangi afbrotavarnanefndar Sameinuðu þjóðanna og fíkniefnanefndar Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg fer fram stefnumótandi vinna á sviði alþjóðlegra aðgerða gegn skipulagðri glæpastarfsemi og ólöglegri verslun með fíkniefni. Jafnframt vinnur skrifstofa Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg að aðgerðum til að stemma stigu við hryðjuverkastarfsemi og spillingu.


Afhending trúnaðarbréfs hjá CTBTO

29.7.2004

Sveinn Björnsson, sendiherra, hefur afhent dr. Wolfgang Hoffmann, framkvæmdastjóra Stofnunar Samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnorkuvopn (CTBTO), trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands hjá CTBTO.

CTBTO - Afhending trúnaðarbréfs

Samningurinn um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn kveður á um algert bann við hvers kyns tilraunakjarnasprengingum er tengjast þróun kjarnavopna. Alls hafa 172 ríki undirritað samninginn og 115 ríki staðfest hann. Ísland staðfesti samninginn þann 26. júní 2000. Þar sem samningurinn hefur ekki ennþá tekið gildi var komið á fót sérstakri undirbúningsnefnd í Vínarborg til að vinna að undirbúningi vegna staðfestingu samningsins.

Mikilvægi samningsins liggur fyrst og fremst í því að samkvæmt honum er kjarnavopnaríkjum bannað að framkvæma tilraunasprengingar með kjarnavopn jafnframt því sem hann hindrar ríki, sem ekki hafa yfir kjarnavopnum að ráða, að þróa slík vopn með aðstoð tilraunasprenginga.

Eitt meginverkefni stofnunarinnar er að þróa alþjóðlegt eftirlitskerfi, sem byggir á neti rúmlega 337 eftirlitsstöðva, en slíkt eftirlitskerfi þarf að vera til staðar þegar samningurinn tekur gildi. Tvær slíkar stöðvar eru á Íslandi, önnur til að mæla jarðhræringar og hin til að mæla geislavirkni og eru þær staðsettar í Borgarfirði og Reykjavík.




 

 


Fax:

+43 1 533 2774


Opnunartími:

Mán-fös
9:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, þýska, enska.