Botschaft von Island - Wien, Österreich

Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771



Nachrichten und Veranstaltungen


Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 27. maí 2006

7.4.2006

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 27. maí nk. fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York og Winnipeg og hefst mánudaginn 3. apríl 2006. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis, samanber meðfylgjandi lista.

Æskilegt er að væntanlegir kjósendur hafi samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa. Gert er ráð fyrir að kjósendur kynni sér sjálfir hverjir eru í framboði og hvaða listabókstafir eru notaðir í viðkomandi sveitarfélagi. Hagnýtar upplýsingar um kosningarnar má finna á vefsetrinu: www.kosningar.is

Athygli kjósenda er ennfremur vakin á því, að þeim ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi.

Listi yfir sendiráð og kjörræðisskrifstofur Íslands (PDF - 84,2 KB)

 

 

Leturstærð: